|
Job Description |
Vilt þú taka þátt í uppbyggingu eins stærsta innviðaverkefnis í Noregi?
Sotrasambandið er ný 9,4 km. löng akgreina vegtenging milli Storavatnets og Kollveit í Noregi. Verkefnið felur m.s. í sér fjögur tveggja akgreina jarðgöng, nýja fjögurra akreina brú sem er um 900 metra löng, hjóla- og göngustíga, bílastæði ofl.
Vegagerðin gerði samstarfssamning við Sotra Link AS vegna þessa verkefnis og er þetta stærsti einstaki samningurinn sem Vegagerðin hefur undirritað. Verktakinn sem sér um framkvæmdina er Sotra Link Construction JV ANS og hófust framkvæmdir í mars 2023. Áætlað er að umferðartenging komist á haustið 2027 og að göngu- og hjólreiðastígar verði tilbúnir árið 2028.
Sotra Link óskar eftir að ráða MEP verkstjóra/umsjónaraðila (MEP supervisor) í nokkur störf, þar til verkefninu lýkur.
Verkstjóri fjarskipta- og öryggiskerfa (Telecommunications & Security Systems Supervisor)
Við leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum verkstjóra fjarskipta- og öryggiskerfa til að hafa umsjón með uppsetningu og samþættingu samskipta- og öryggiskerfa í umfangsmiklu innviðaverkefni.
Helstu verkefni:
- Hafa umsjón með uppsetningu og samþættingu fjarskipta- og öryggiskerfa
- Stýra kerfum á borð við CCTV, aðgangsstýringum, brunaviðvörunarkerfi og samskiptaneti
- Samræma vinnu verktaka og tækniteyma þvert á faggreinar
- Taka þátt í prófunum, gangsetningu og afhendingu kerfa
- Fylgjast með framvindu og tryggja afhendingu í samræmi við verkáfanga og gæðastaðla
- Tryggja að öryggis-, laga- og verkefniskröfum sé fylgt
- Styðja við samþættingu kerfa og leysa tæknileg vandamál
Hæfniskröfur:
- Viðeigandi tæknimenntun á sviði fjarskipta, rafeindatækni eða sambærilegu
- Lágmark - 5 ára reynsla af fjarskipta-, öryggis- eða lágspennukerfum
- Reynsla af CCTV, aðgangsstýringum, brunaviðvörunarkerfum og/eða samskiptakerfum
- Þekking á ljósleiðara og netkerfum er kostur
- Hæfni til að lesa og túlka tækniteikningar og gögn
- Góð samhæfingar-, samskipta- og lausnafærni
- Skipulagni í vinnubrögðum og frumkvæði
- Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum í síma 860 1099 og á netfangið agla@radum.is |