Job Title Verkstjóri sjálfvirkni og VTS-samþættingar
Date Posted 4/14/2026
Position Id EB-1288755354
Job Description

Vilt þú taka þátt í uppbyggingu eins stærsta innviðaverkefnis í Noregi?

Sotrasambandið er ný 9,4 km. löng akgreina vegtenging milli Storavatnets og Kollveit í Noregi.
Verkefnið felur m.s. í sér fjögur tveggja akgreina jarðgöng, nýja fjögurra akreina brú sem er um 900 metra löng, hjóla- og göngustíga, bílastæði ofl.

Vegagerðin gerði samstarfssamning við Sotra Link AS vegna þessa verkefnis og er þetta stærsti einstaki samningurinn sem Vegagerðin hefur undirritað.
Verktakinn sem sér um framkvæmdina er Sotra Link Construction JV ANS og hófust framkvæmdir í mars 2023.

Áætlað er að umferðartenging komist á haustið 2027 og að göngu- og hjólreiðastígar verði tilbúnir árið 2028.

Sotra Link óskar eftir að ráða MEP verkstjóra/umsjónaraðila (MEP supervisor) í nokkur störf, þar til verkefninu lýkur.

Verkstjóri sjálfvirkni og VTS-samþættingar (Automation & VTS Integration Supervisor)

Við leitum að öflugum verkstjóra á sviði sjálfvirkni og VTS-samþættingar sem tekur leiðandi hlutverk í uppsetningu og samþættingu flókinna sjálfvirkni- og stjórnkerfa í umfangsmiklu og þverfaglegu innviðaverkefni.
Um er að ræða tæknilegt lykilhlutverk þar sem viðkomandi ber ábyrgð á að tryggja að mörg þróuð kerfi virki hnökralaust sem ein samþætt heild.


Helstu verkefni:

  • Stýra og hafa umsjón með uppsetningu og samþættingu sjálfvirkni- og stjórnkerfa (PLC/SCADA/DCS)
  • Samræma vinnu milli rafmagns-, vél- og fjarskiptasviða til að tryggja samþættingu kerfa
  • Taka þátt í prófunum, gangsetningu og staðfestingu kerfa með áherslu á afköst og áreiðanleika
  • Fylgjast með framvindu og tryggja afhendingu í samræmi við verkáfanga, gæðakröfur og öryggisstaðla
  • Yfirfara og staðfesta tæknigögn, teikningar og kerfishönnun
  • Greina og leysa tæknilegar og samþættingartengdar áskoranir
  • Veita tæknilega yfirsýn og skýrslugjöf til hagaðila verkefnisins

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í rafmagnsverkfræði, sjálfvirkni, tæknifræði eða sambærilegu
  • Lágmark - 5 ára reynsla af sjálfvirkni- og stjórnkerfum í flóknum verkefnum
  • Góð reynsla af PLC/SCADA kerfum (DCS er kostur)
  • Traust þekking á samþættum tæknikerfum og tengingum þeirra
  • Hæfni til að lesa og túlka flókin tæknigögn og teikningar
  • Góð samhæfingar-, samskipta- og lausnafærni
  • Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti

Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum í síma 860 1099 og á netfangið agla@radum.is