Job Title Verkstjóri rafkerfa og mannvirkja
Date Posted 4/14/2026
Position Id EB-1236799936
Job Description

Vilt þú taka þátt í uppbyggingu eins stærsta innviðaverkefnis í Noregi?

Sotrasambandið er ný 9,4 km. löng akgreina vegtenging milli Storavatnets og Kollveit í Noregi.
Verkefnið felur m.s. í sér fjögur tveggja akgreina jarðgöng, nýja fjögurra akreina brú sem er um 900 metra löng, hjóla- og göngustíga, bílastæði ofl.

Vegagerðin gerði samstarfssamning við Sotra Link AS vegna þessa verkefnis og er þetta stærsti einstaki samningurinn sem Vegagerðin hefur undirritað.
Verktakinn sem sér um framkvæmdina er Sotra Link Construction JV ANS og hófust framkvæmdir í mars 2023.
Áætlað er að umferðartenging komist á haustið 2027 og að göngu- og hjólreiðastígar verði tilbúnir árið 2028.

Sotra Link óskar eftir að ráða MEP verkstjóra/umsjónaraðila (MEP supervisor) í nokkur störf, þar til verkefninu lýkur.

Verkstjóri rafkerfa og mannvirkja (Electrical Systems & Facilities Supervisor)

Við leitum að reynslumiklum verkstjóra rafkerfa og mannvirkja sem ber ábyrgð á raflögnum og rafkerfum í stórum og tæknilega krefjandi innviðaverkefnum.
Starfið krefst góðrar tæknilegrar þekkingar ásamt hæfni og getu til að samræma verktaka og tryggja örugga og vandaða framkvæmd.


Helstu verkefni:

  • Stýra og hafa umsjón með uppsetningu, rekstri og eftirfylgni rafkerfa og búnaðar
  • Tryggja að vinna sé unnin í samræmi við tæknilýsingar, teikningar og staðla
  • Samræma vinnu verktaka og undirverktaka innan rafsviðs
  • Hafa umsjón með prófunum, úttektum og afhendingu rafkerfa
  • Fylgjast með framvindu og tryggja afhendingu í samræmi við verkáætlun
  • Yfirfara og samþykkja tæknigögn og forskriftir
  • Tryggja að öryggisstöðlum sé fylgt, þar á meðal LOTO-ferlum og gildandi regluverki
  • Sjá um skýrslugjöf og samskipti við hagaðila verkefnisins

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í rafmagnsverkfræði eða sambærileg menntun
  • Lágmark - 5 ára reynsla af rafkerfum í byggingar- eða innviðaverkefnum
  • Reynsla af orkudreifingu, lýsingu og raflögnum
  • Góð þekking á rafmagnsöryggi og verkferlum á verkstað
  • Reynsla af samhæfingu verktaka og starfssemi á verkstað
  • Hæfni til að lesa og meta tækniteikningar og gögn
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti


Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum í síma 860 1099 og á netfangið agla@radum.is